19.4.2009 | 08:46
Illugi svíkur stefnu landsfundar !
Hið ótrúlega hefur skeð. Aðeins 3 vikum eftir lok landsfundar Sjálfstæðisflokksins, er einn frambjóðenda flokksins farinn að boða Evrópu-stefnu sem er þvert á samþykktir flokksins. Þingvalla-stjórn Geirs Haarde setti á fót nefnd að kröfu Samfylkingarinnar, sem ætlað var að fara enn einu sinni yfir rök gegn Evrópusambands-aðild landsins. Þessi nefnd kynnti niðurstöður í gær 18.apríl 2009.
Í máli Illuga Gunnarssonar fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í nefndinni kom fram það álit, að:
leita eigi eftir samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um að stefnt verði að því að íslensk stjórnvöld og IMF vinni að því í sameiningu að í lok áætlunarinnar geti Íslendingar tekið upp evru sem gjaldmiðil.
Heimild: http://xd.is/?action=grein&id=20423
Þarna er verið að fara gróflega á sveig við mótaða stefnu landsfundarins. Um er að ræða nálgun að Evrópusambandinu sem ekki getur falið í sér neitt annað en umsókn um inngöngu landsins.
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins 26.-29. marz 2009 samþykkti, að aðild að Evrópusambandinu þjóni ekki hagsmunum Íslendsku þjóðarinnar. Jafnframt var eftirfarandi samþykkt gerð um peningastefnuna:
Peninga(mála)stefnuna verður að endurskoða. Ljóst er að krónan verður lögeyrir landsins enn um sinn, sama hvað verður fyrir valinu síðar. Afar mikilvægt er að agi sé á hagstjórn; ríkisútgjöldum sé haldið í lágmarki og að samræmi sé milli ríkisfjármála og peningamálastefnunnar.
Þannig er æskilegt að stjórnvöld einsetji sér að uppfylla skilyrði eins og fram koma í Maastricht-sáttmálanum. Ákvarðanir um framtíðarskipan gjaldmiðilsmála verður hins vegar að taka af mikilli yfirvegun eftir gaumgæfilega skoðun á öllum möguleikum. Lagt er til að vinna við endurskoðun á gjaldmiðli landsins hefjist strax og ljúki á árinu.
Í áliti Illuga er ekkert fjallað um aðra kosti en upptöku Evru, þrátt fyrir þá staðreynd að bent hefur verið á aðra mun betri kosti. Hér er hægt að nefna sérstaklega "fastgengi undir stjórn Myntráðs". Með notkun Bandaríkjadals sem stoðmyntar værum við strax komin með alþjóðlegan gjaldmiðil í notkun innanlands.
Ég vil því harðlega mótmæla áliti Illuga Gunnarssonar og lýsi því yfir, að ég lít ekki á hann sem ásættanlegan frambjóðanda flokksins. Alla sem eru sama sinnis, hvet ég til að strika Illuga Gunnarsson af framboðslistanum, um leið og ég hvet þá til að kjósa lista Sjálfstæðisflokksins.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Viðskipti og fjármál, Stjórnmál og samfélag, Evrópumál | Breytt s.d. kl. 09:59 | Facebook


andrigeir
andres
axelthor
baldher
benediktae
bjarnihardar
dullur
bjarnimax
gattin
dansige
drp
gagnrynandi
okkarframtid
eeelle
emilkr
eyglohardar
ea
flosi
fhg
vidhorf
geiragustsson
gerdurpalma112
topplistinn
tilveran-i-esb
skulablogg
gun
vinaminni
lucas
zumann
hreinn23
alit
hallarut
halldojo
morgunblogg
hallurmagg
hannesgi
haddi9001
harhar33
heimssyn
senjoran
helgi-sigmunds
himmalingur
hjaltisig
hogni
hordurvald
jp
islandsfengur
jonmagnusson
bassinn
jonvalurjensson
jon-o-vilhjalmsson
kuriguri
josep
juliusbearsson
kolbrunb
ksh
kolbrunerin
krist
kristjan9
gmc
riddaralidid
durban2
iceland
rafng
ragnhildurkolka
redlion
heidarbaer
duddi9
sjonsson
sigurdurkari
siggisig
siggith
snorrima
blauturdropi
sveinnt
athena
solthora
tara
theodorn
vala
postdoc
gudni-is
agbjarn
sparki
armannkr
arh
asmundur
ibb
astromix
olijoe
omarbjarki
omargeirsson
huldumenn
thjodarheidur
thorsteinnhelgi
valli57
iceberg
doddidoddi







Athugasemdir
Hvaða rökleysa er þetta?
Einstakir frambjóðendur flokka afsala sér ekki að hafa sínar skoðanir á málum. Slíkt krafa er aðeins gerð í alræðisríkjum. Það að skoða að taka upp einhliða Evru er ekki verið að ganga í Evrópusambandið.
Málflutningur sem byggir á öfgum er það síðasta sem íslensk þjóð þarf á að halda við þær aðstæður sem við búum við.
Misminnir mig að kjósendur Sjálfstæðisflokksins hafi frekar viljað Illuga í fyrsta sætið í Reykjavík fremur en þig? Gætu það verið skilaboð um að málflutningur Illuga hugnist kjósendum frekar?
Sigurður Þorsteinsson, 19.4.2009 kl. 10:51
Illugi er ekki sá stefnufastasti stjórnmálamaður sem ég hef séð. Hann má þó að sjálfsögðu hafa sínar skoðanir, en það mega kjósendur líka. Reglustikuna fari með í kjörklefann !
Haraldur Baldursson, 19.4.2009 kl. 10:59
Félagar Sigurður og Haraldur.
Illugi er ekki að tala í sínu persónulega nafni heldur flokksins. Haft er eftir honum:
Illugi er ekki óbreytturflokksmaður eins og ég, heldur efsti maður á framboðslistanum. Honum ber skilda til að fylgja samþykktum landsfundar, því að öðrum kosti er allt starf landsfunda hrein markleysa.
Á það má minna, að skýrsla AGS sem Illugi vísar til er leyniskýrsla, sem AGS hefur ekki kannast við. Að auki fjallar hún um Austur-Evrópu, þar sem aðstæður eru aðrar en hér. Umfjöllun Illuga er því byggð á marklausum grunni, en gagnast honum til að auglýsa ESB-hollustu sína.
Loftur Altice Þorsteinsson, 19.4.2009 kl. 11:25
Eg hefi mikla trú á Illuga en það er mikið til i þessu sem þú segir Loftur Landsfundur ákvað þetta og við eigum að fara eftir því,allavega frambjóðendur,því miður eru mjög margir á þessari skoðun í flokknum/en eg vil ekki fremur ,en flestir að frambjóðendur tali einu máli,hverra skoðunar sem þeir eru annars/Halli gamli
Haraldur Haraldsson, 19.4.2009 kl. 11:52
Ég legg alls ekki að jöfnu þetta tvennt: 1) nota evru, 2) ganga inn í ESB.
Ýmsar þjóðir hafa notað dollar án þess að ganga inn í ríkjasambandið USA.
Þegar Steingrímur vildi taka upp norska krónu var hann ekki að tala um konungssamband við Noreg.
Ég er algerlega sammála Illuga um þetta atriði. Það myndi leysa gífurlegan vanda ef ESB samþykkti að leyfa okkur að nota evru. Illugi er framsýnn maður. Ég hvet þig eindregið til að skoða hug þinn betur hvað þetta varðar, virðulegi Loftur Altice.
Baldur Hermannsson, 19.4.2009 kl. 12:25
Ég vil þakka ykkur sem komið hafa hér inn með athugasemdir. Undanfarna daga hef ég verið á Norðurlandi og án aðgangs að Netinu.
Ég er sammála því Baldur, að notkun Evru og innganga í Evrópusambandið er tvennt ólíkt. Hins vegar er sú hugmynd Illuga, að við tökum upp Evru í samstarfi við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn, alls ekki við hæfi á þessum tímapunkti og líklega aldreigi.
Fyrir það fyrsta, þá eru allar vísbendingar um nálgun að Evrópusambandinu illa séðar hjá fjölmörgum Sjálfstæðismönnum. Á landsfundinum í síðasta mánuði, var hart tekist á um Evrópuaðild og ekki síður í aðdraganda landsfundarinns. Þar er ég að vísa til Evrópunefndarinnar og annara málefnanefnda til undirbúnings landsfundinum.
Í þessum nefndum var beitt bolabrögðum af hálfu ESB-sinna. Neitað var eðlilegum málflutningi og afgreiðslu í framangreindum nefndum. Jafnframt var ætlun ESB-sinna að keyra ályktanir með ESB-aðild í gegn um landsfundinn. Það var einungis hörð andstaða fullveldissinna sem hindraði þessi brögð og menn eru því mjög á varðbergi gegn svikum.
Í öðru lagi, ályktaði landsfundurinn um hvernig undirbúa skyldi stefnu Sjálfstæðisflokksins í peningamálum. Þar segir meðal annars, eins og ég sýndi í blogginu:
Með öðrum orðum liggur ekki fyrir, að flokksmenn vilji fremur taka upp Evru en til dæmis US Dollar. Einnig er hægt að sýna fram á, að "fastgengi undir stjórn Myntráðs", er bezta fyrirkomulag sem okkur stendur til boða. Það er því óþolandi, að einhverjir í forustu flokksins, eða forustan öll, fari að hefja Evru-trúboð á eigin forsendum.
Í þriðja lagi, er þessi hugmynd byggð á veikum grunni, svo ekki sé tekið sterkara til orða. Percy Westerlund, sendiherra Evrópusambandsins gagnvart Noregi og Íslandi, hefur við fjölmörg tækifæri hafnað upptöku Evru án inngöngu í Evrópusambandið. Það þjónar hvorki hagsmunum Sjálfstæðisflokksins né Íslendinga, að fitja upp á lausnum sem margoft er búið að hafna. Annað mál er að nota Evruna sem stoðmynt við innlendan gjaldmiðil undir stjórn Myntráðs. Það er mögulegt, þótt US Dollar sé hentugri, af ástæðum sem ég hef oft rakið.
Hægt er að færa fleirri rök gegn þessu frumhlaupi Illuga, sem ég nú sé að fleirri í forustu flokksins stóðu að. Svona eiga menn ekki að vinna að málefnum ef þeir vilja njóta trausts flokksmanna og þjóðar.
Loftur Altice Þorsteinsson, 24.4.2009 kl. 22:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.